Vá fórum út að borða í gær á Tapas niður í bæ og vá leið eins og ég væri bara komin til Espania geggjaður matur og góð stemmning... mæli eindregið með þessum stað!!! Kíktum svo aðeins á Óliver og fengum okkur bjór eða allir nema Silla því hún var á bíl þrælvel heppnað kvöld...verðum að gera þetta oftar guys....
En já stundaði bíómenninguna í vikunni fór á fimmtudaginn með Guðmund Val á Jón Pál myndina og hún stóð alveg fyrir sínu, mjög áhugaverð mynd þar á ferð. Fór svo á föstudaginn með Lindu að sjá dansmyndina Step Up og er ég ekki frá því að það hafi kviknað gamall þráður í danssporin hjá mér allavega fórum við báðar alveg langt inn í draumaheim
Kristján bróðir varð 15 ára í gær og vil ég óska honum til hamingju með það hann er orðinn svo stór allavega búinn að ná mér kannski ekki erfitt Rút kemur heim á þriðjudaginn, búið að vera mikið ævintýri hjá henni á Spáni, hlakka til að sjá hana.... Svo er það bara skóli og aftur skóli sem er reyndar gaman þar sem þetta er mjög skemmtilegt nám.... og ennþá skemmtilegra að vera í leikfimi alla daga:/ hehe nei það er bara gaman
ég trúi ekki að Grindavík ætli að fara að falla í fótboltanum, verða að standa sig strákarnir á laugardaginn á móti FH, þeir verða reyndar að reiða sig á önnur úrslit en vonandi er heppnin með okkur þar!!!!!! en já allavega allt gott að frétta og ég er orðin þreytt þarf að vakna snemma á morgun þannig að ég bið bara að heilsa...
Rósa
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.