Frelsid er yndislegt, eg geri tad sem eg vil:)

A ferd og flugi...

15.12.2006 15:12:01 / rosa

Jólin koma, jólin koma:)

Jæja þá er prófdögum lokið og nóg að gera....Loksins kemst maður í almennilegt frí, var orðin hálf heilaþvegin af þessum prófum!!!!

En engu að síður nóg að gera, fórum á vegamót eftir prófið á þriðjudag við bekkurinn og var alveg rosalega gaman, en til að gera langa sögu stutta þá held ég að ég hafi skemmt mér of vel ( if you know what I meen) allavega fannst Sillu og Unni ég ekki líta vel út daginn eftir:)   Svo er ég loksins byrjuð að mæta á æfingar aftur eftir próffrí og er ekkert smá gaman að hreyfa sig aftur enda þarf ég á því að halda;) 

Í gær fórum ég og Klara að heimsækja Kristjönu og Jakob Mána og vá hvað strákurinn er sætur, alger rassgat með kolsvart hár og ekkert smá góður:)  bara enn og aftur til hamingju Kristjana og Maggi með litla kút:D 

Í kvöld verður svo aðaldjammið þar sem að er hittingur heima hjá mér og á að elda góðan mat og fara svo út á lífið og gera allt brjálað, ég hins vegar held ég verði bara róleg!!!!!:)ekkert áfengi fyrir mig enda verður einhver að passa upp á að hinar fari sér ekki að voða8|.

Svo er bara æfing á morgun um morguninn og svo er Gauti bró að koma í heimsókn til stórusystir og ætlar að fá að sofa og allt:) það verður svaka stuð hjá okkur...langt síðan hann hefur komið!

Og svo er það bara stórleikur á sunnudaginn við Snæfell og hvet ég alla til að koma að horfa á okkur gellurnar spila.. allavega þá sem eru ekki búnir að sjá okkur;)  svaka fjör:D

En vildi bara heilsa upp á ykkur þessa fáu sem lesa þetta bull!  ætla að fara að halda áfram að þrífa...jibbí

Bibba rokk skrifaði
Ekkert áfengi fyrir mig....... yeah rigt :) Takk fyrir gærkvöldið skemmti mér vel og hressleikinn hjá mér á morgunæfingunni var gífurlegur
Klara skrifaði
Passa að hinar fari sér ekki að voða.. varst greinilega ekki að standa þig, ég var að drepast úr þynnku í allan dag!! :) Takk fyrir mig engu að síður, þetta var rosastuð.. (hvað var málið með að byrja kvöldið á tekíla staupi?) held samt að opalið hafi gert útslagið hvað þynnku varðar.. held að það sé killer :S
Rósa skrifaði
hehe þú fórst þér allavega ekki að voða tókst bara afleiðingunum daginn eftir:) en nei var ekki að standa mig enda fór ég heim...... hehe en vona að þú hafir skemmt þér vel:)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan