Frelsid er yndislegt, eg geri tad sem eg vil:)

A ferd og flugi...

22.01.2007 13:51:09 / rosa

Ný síða....

Jæja þá er loksins komin ný síða og nýtt blogg...sorry hvað ég var lengi að koma henni af stað en núna er hún tilbúin:) www.123.is/rosirnar endilega kíkið og látið heyra í ykkur bæ í bili..... Rósa

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 19:40:15 / rosa

Sjúp,sjúp, sjúp......:)

Jæja þá er komið að ferðinni sem lengi hefur verið beðið eftir:lol:

Hele familian er á leiðinni til Sviss til að skíða í ölpunum!!!!!  Þetta verður geggjuð ferð og er manni mikið búið að hlakka til:o  

Langaði bara að kasta á ykkur kveðju svona þegar árið er að líða og vonandi sjáumst við hress á nýju ári:)

Kveðja Rósa


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 15:14:26 / rosa

Gleðileg jól

Langaði að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs:)

Sjáumst hress á nýju ári!!!!!

Jólakveðja Rósa


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 11:39:58 / rosa

Sætur sigur:)

Hehe fyrir þá sem ekki skilja fyrirsögnina þá vorum við í Ármann-Þrótt að vinna Snæfell í gær og var það alveg dásamlegt...bara gaman og liðið mitt stóð sig svo vel:) þvílík barátta....just like the old days með Grindó!!!!!!!

En já þá eru stelpurnar okkar gengnar út og er því lítið um gleðskap hér í Stóragerðinu um þessar mundir...en ekki örvænta það verður samkoma hér á fimmtudaginn þegar körfuboltaliðið mitt ætlar að mæta og halda litlu jól:) hlakka mikið til:lol:

Vá þarf að fara að kaupa jólagjafir og klára það og svo þarf náttúrulega að þrífa og svo þrífa meira!!!!  En gaman að  því að ég og Gauti fórum í verslunarleiðangur á laugardaginn og enduðum með fullt af jólaskrauti og svo eitt stk jólatré!!!:) skreyttum það svo um kvöldið og var rosa gaman:D  Það eru sem sagt að koma jól í Stóragerðinu:D

Turulú


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 15:12:01 / rosa

Jólin koma, jólin koma:)

Jæja þá er prófdögum lokið og nóg að gera....Loksins kemst maður í almennilegt frí, var orðin hálf heilaþvegin af þessum prófum!!!!

En engu að síður nóg að gera, fórum á vegamót eftir prófið á þriðjudag við bekkurinn og var alveg rosalega gaman, en til að gera langa sögu stutta þá held ég að ég hafi skemmt mér of vel ( if you know what I meen) allavega fannst Sillu og Unni ég ekki líta vel út daginn eftir:)   Svo er ég loksins byrjuð að mæta á æfingar aftur eftir próffrí og er ekkert smá gaman að hreyfa sig aftur enda þarf ég á því að halda;) 

Í gær fórum ég og Klara að heimsækja Kristjönu og Jakob Mána og vá hvað strákurinn er sætur, alger rassgat með kolsvart hár og ekkert smá góður:)  bara enn og aftur til hamingju Kristjana og Maggi með litla kút:D 

Í kvöld verður svo aðaldjammið þar sem að er hittingur heima hjá mér og á að elda góðan mat og fara svo út á lífið og gera allt brjálað, ég hins vegar held ég verði bara róleg!!!!!:)ekkert áfengi fyrir mig enda verður einhver að passa upp á að hinar fari sér ekki að voða8|.

Svo er bara æfing á morgun um morguninn og svo er Gauti bró að koma í heimsókn til stórusystir og ætlar að fá að sofa og allt:) það verður svaka stuð hjá okkur...langt síðan hann hefur komið!

Og svo er það bara stórleikur á sunnudaginn við Snæfell og hvet ég alla til að koma að horfa á okkur gellurnar spila.. allavega þá sem eru ekki búnir að sjá okkur;)  svaka fjör:D

En vildi bara heilsa upp á ykkur þessa fáu sem lesa þetta bull!  ætla að fara að halda áfram að þrífa...jibbí


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 09:40:57 / rosa

Próflestur dauðans!!!!

jæja Matthildur var eitthvað að skamma mig fyrir að vera ekkert að blogga þannig að ég ákvað að segja eitthvað :)  þannig er mál með vexti að ég er bara í prófum og er lærandi 24/7 næstum því en fer allavega að heiman 8-9 á morgnana og kem heim um miðnætti þannig að hef lítil samskipti við fólk nema þá kannski Klöru sem er hérna líka að læra.......en allavega hef bara ekkert að segja.......uummm jújú Mamma mín á afmæli í dag og er kellan orðin 45 ára! til hamingju með það :)  og já svo er ég byrjuð að spila körfu með Ármanni-Þrótt og er það alger snilld þetta lið:lol:  Spilaði minn fyrsta leik um daginn á móti KR, við töpuðum leiknum:whut:  en ég stóð mig ágætlega og skoraði 15 stig! Vá hef ekki skorað svona mikið síðan í mínibolta, get svarið það, en gaman að því ;)......

Rut systir flutt í bæinn..verð að fara að kíkja á hana..

Rósa


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 12:29:48 / rosa

fönn, fönn, fönn.....

Vá mikið rosalega var stór hluti af mér glaður þegar ég vaknaði í morgun og sá að það var allt hvítt úti!!!!! loksins kominn snjór, eitthvað sem ég missti af í fyrra og hlakkaði rosalega mikið til að fá núna:)   hlakka svo til að geta farið í fjallið og rennt mér á skíðum.....en þá er það hinn hlutinn af mér en það er sá sem vill ekki hafa hálku eða snjó þar sem ég er að keyra á milli til keflavíkur og ekki gaman þegar allt er á kafi í snjó! 

 Ég og Silla vorum að líta út um gluggan og líst ekkert á blikuna þar sem að við þurfum örugglega að moka bílunum burtu og ég sem á ekki einu sinni sköfu:(  en þá er bara um að gera að vera ekki að fara neitt í dag og liggja bara í leti eins og Silla eða læra eins og ég:)

allavega langaði bara aðeins að blogga um snjóinn sem ég er búin að sakna ( en bara í fjöllunum)

Rósa


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 10:07:07 / rosa

Boston, Boston, Boston

jáhá...........  Ég er að fara til Boston á eftir:)

Vá get ekki beðið...pakkaði engu ofan í nema annarri tösku;)

En allt gegnur vel í skólanum....er að fá gott út úr prófum og svona.. og svo fara prófin bara að byrja 29 nóv....allt svo fljótt að líða:)

en bið bara að heilsa í bili...ætla að fara að versla...muhahahha


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 19:08:29 / rosa

núnú.......

Well,Well, Well!!!!!!!

nú loksins fær maður tíma til að skrifa eitthvað hérna inn á...búið að vera brjálað að gera í skólanum. Hvernig stendur á því að kennarar þurfa alltaf að taka sig saman og setja öll erfiðu verkefnin á sama tíma???? ég þori að veðja að þau haldi fund og ákveði þetta, gera þetta bara svo maður hafi ekki tíma til að gera verkefnin vel og fái svo lélega einkunn:( En allavega verkefna törnin búin í bili eigum samt eftir að skila tveimur en fáum aðeins lengri tíma til þess.... Held ég sé búin að setja persónulegt met í lærdómi, er bara alltaf lærandi...vissi ekki að ég hefði þetta í mér:) til hamingju mamma og pabbi;) en í alvöru hef ekki einu sinni lært svona mikið þegar ég er í prófum!!!!

Fótboltinn kominn á fullt og bara gaman. skemmtilegt að geta allavega verið með án þess að deyja þannig að formið er allt að koma :) svo er ég líka eitthvað að sprikla í körfu þegar ég get og er það bara gaman.....

Annars finnst mér alveg rosalega gaman í skólanum og vá hvað maður finnur það þegar maður er að læra það sem manni langar að starfa við...allt annað en að læra bara eitthvað!!! æi nú bara farin að bulla

já bara 2 vikur í Boston:) er að fara í verslunarferð þangað með mömmu, Söndru og Særós og hlakka bara til....verð örugglega í vandræðum með að komast inní landið aftur þar sem að ég ætla að kaupa alla AMERÍKU!!!!!!!!

Var að lesa alveg rosalega skemmtilega ferðasögu frá honum Tomma og fór þá að skoða myndir úr ferðinni og vá söknuður dauðans:(

out


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 17:55:01 / rosa

Andleysi!!!!

Hvað er það sem gerist þegar maður verður svona andlaus????

Síðast vika fór í það hjá mér að gera ekki neitt en samt gerði ég helling og það var brjálað að gera hjá mér..... hvernig er þetta hægt?

Ég átti í tómu basli við að gera eina litla ritgerð, hreinlega gat bara ekki sest niður og skrifa, það bara kom ekki neitt.....algerlega stífluð!!! hefur þetta komið fyrir ykkur??? ég gerði líka allt annað en að byrja á þessari ritgerð, kannist þið við það?  Var orðin pínu kvíðin fyrir því að ná ekki að skila ritgerðinni á tíma en það tókst loksins eftir mikið basl, höfðum tíma til miðnættis á föstudag og ég skilaði henni kl hálf átta um kvöldið:)   en já þvílík vika allt ómögulegt og fyrir vikið varð ég eftir á í öllum hinum fögunum!!! en já verður bara að sparka í rassgatið á sér og hífa sig upp  og vá var það gert á föstudagskvöldið:) fórum í styrktarpartý hjá Ármanni-þrótt (ég er ný byrjuð að spila með þeim:))  ég held ég hafi bara ekki skemmt mér jafn vel í langan tíma.....hitti fullt af fólki sem ég er ekki búin að sjá lengi og svo auðvitað voru flesti vinir mínir.

En vá brilliant kvöld í alla staði:) þið sem komust ekki komið bara næst, held það eigi að vera í febrúar:) bara gaman.....

Já er byrjuð að æfa körfu, svona smá og fékk meira að segja að keppa í gær:) en við skulum ekkert tala um það!!!!!!!  en allavega rosalega gaman að vera komin aftur í svona hóp er búin að sakna þess!!!!

Á laugardagskvöldið fór ég svo í bekkjarparty og var það fínt var reyndar bara róleg þar sem ég var enn að jana mig eftir föstudagskvöldið:)  en alltaf gaman að hitta krakkana fyrir utan skólann..

jæja nóg af bulli --- þarf að fara að læra

OUT


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 11:11:56 / rosa

Stopp....

Eru ekki allir búnir að skrá sig á stopp.is???????  ef þið eruð ekki búin endilega gerið það sem fyrst!

Lesið þetta blogg frá stelpu sem missti systir sína í bílslysi!!!! www.blog.central.is/hrund

Förum varlega í umferðinni......


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 17:20:12 / rosa

Hversu vel þekkjir þú mig?

 

Fimm orð sem lýsa mér best?

Ef þú myndir mega spyrja mig að einu, hver væri spurningin?

Hef ég sært þig?

Ég er _________ manneskja sem þú hefur kynnst?

Hver er besta vinkona mín?

Við hvað á ég eftir að starfa?

Hvað hata ég mest?

Hvað elska ég mest?

Mun ég giftast?

Mun ég skilja?

Fallegasti líkamspartur minn ?

Hvaða litur fer mér best?´

Er ég trúuð?

Áhugamál mín?

Hvað finnst mér fyndnast?

jæja sýnið mér nú hversu vel þig þekkið mig:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 10:50:02 / rosa

stóra stundin runnin upp!!!

jæja Laugardagurinn runninn upp og verður maður bara að bíða og vona að grindvikingum takist þetta á lokasprettinum.

Sendi þeim alla mína góðu strauma:)

ÁFRAM GRINDAVÍK...................

UMFG


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 22:07:54 / rosa

Á spáni er gott að djamma og djúsa........

Vá fórum út að borða í gær á Tapas niður í bæ og vá leið eins og ég væri bara komin til Espania:) geggjaður matur og góð stemmning... mæli eindregið með þessum stað!!! Kíktum svo aðeins á Óliver og fengum okkur bjór eða allir nema Silla því hún var á bíl:) þrælvel heppnað kvöld...verðum að gera þetta oftar guys....

En já stundaði bíómenninguna í vikunni fór á fimmtudaginn með Guðmund Val á Jón Pál myndina og hún stóð alveg fyrir sínu, mjög áhugaverð mynd þar á ferð. Fór svo á föstudaginn með Lindu að sjá dansmyndina Step Up og er ég ekki frá því að það hafi kviknað gamall þráður í danssporin hjá mér;) allavega fórum við báðar alveg langt inn í draumaheim:)

Kristján bróðir varð 15 ára í gær og vil ég óska honum til hamingju með það:) hann er orðinn svo stór allavega búinn að ná mér;) kannski ekki erfitt:)                                  Rút kemur heim á þriðjudaginn, búið að vera mikið ævintýri hjá henni á Spáni, hlakka til að sjá hana....                                                                                                     Svo er það bara skóli og aftur skóli sem er reyndar gaman þar sem þetta er mjög skemmtilegt nám.... og ennþá skemmtilegra að vera í leikfimi alla daga:/ hehe nei það er bara gaman:)

 ég trúi ekki að Grindavík ætli að fara að falla í fótboltanum, verða að standa sig strákarnir á laugardaginn á móti FH, þeir verða reyndar að reiða sig á önnur úrslit en vonandi er heppnin með okkur þar!!!!!!                                                                    en já allavega allt gott að frétta og ég er orðin þreytt þarf að vakna snemma á morgun þannig að ég bið bara að heilsa...             

Rósa


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 12:47:55 / rosa

Ég og það sem er búið að gerast.....

Skólinn byrjaður á fullu

Busun DAUÐANS!!!! getið séð það á www.vf.is  Var hissa á að ég skildi standa í endirinn...

Hélt Hjálpartækjasýningu í Stóragerðinu:) geggjað gaman með vinnufélögunum og nokkrum vinkonum. Mikið hlegið og mikið keypt enda er Stóragerði kallað dýragarðurinn í dag;)

Gauti bróðir átti afmæli 27. ágúst orðinn 7 ára og búin að fara í klippingu, svaka sætur:)

Ég er búin að fara í aðgerðina og gekk allt vel, er ennþá að jafna mig þó.....vona bara að öxlin lagist eftir þetta!!!

Fúlt að þurfa að stoppa í leikfiminni á meðan þó og detta úr öllu formi:(

Rut systir að koma heim, hlakka mikið til:)

Mamma og pabbi orðin heimsins mestu göngugarpar!!!

Rósa Dögg komin heim, þó að maður heyri nú aldrei í henni:(

og ég er búin að vera ótrulega dugleg að læra:)

ekki áhugavert líf þetta...........


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan